Tvö smit innanlands

Helstu einkenni Covid-19 sjúkdómsins eru: Hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, …
Helstu einkenni Covid-19 sjúkdómsins eru: Hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta og slappleiki. Í sumum tilvikum hverfur bragð- og lyktarskyn skyndilega og einnig eru dæmu um einkenni frá meltingarvegi eins og niðurgangur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær. Nú er staðan sú að færri eru í sótt­kví en þeir sem eru í ein­angr­un. Alls eru 59 ein­angr­un en 53 í sótt­kví. 942 eru í skimun­ar­sótt­kví og 16 á sjúkra­húsi. Aðeins brot af þeim er með virkt smit. 

Báðir voru í sótt­kví en ann­ar þeirra sem greind­ust í gær kom í ein­kenna­sýna­töku en hinn í sótt­kví­ar­skimun. All­ir sem hafa greinst með Covid-19 inn­an­lands frá 21. janú­ar hafa verið í sótt­kví.

Á landa­mær­un­um greind­ist ekk­ert virkt smit en einn bíður niður­stöðu mót­efna­mæl­ing­ar. Dag­inn áður voru tveir með virkt smit og tveir með mót­efni. 

Mjög mörg sýni voru tek­in í gær eða tæp­lega 1.500. Á sama tíma fækkaði í sótt­kví úr 128 ein­stak­ling­um í 53. Á landa­mær­un­um voru skiman­irn­ar 233 tals­ins.

Ekk­ert virkt smit er á Aust­ur­landi, Norður­landi eystra, Norður­landi vestra og Vest­fjörðum. Á höfuðborg­ar­svæðinu er 41 í ein­angr­un, sjö á Suður­landi og sami fjöldi á Suður­nesj­um. Á Vest­ur­landi eru fjór­ir með Covid-19.

Níu börn eru með Covid-19 og 17 ein­stak­ling­ar á aldr­in­um 18-29 ára. 11 á fer­tugs­aldri og átta á fimm­tugs­aldri. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert