Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að ekkert bendi til þess að tengsl séu á milli bólusetningar við kórónuveirunni og dauðsfalla hér á landi. Hér á landi hafa verið tilkynnt átta andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19.
Í nýútgefnum tölum Lyfjaeftirlits ESB segir að engin dauðsföll megi rekja til bólusetningar með bóluefnum Pfizer/BioNTech.
„Við erum inni í þeim tölum, já,“ segir Rúna við mbl.is
Rúna bætir við að rannsókn embættis landlæknis hafi leitt í ljós að ekkert bendi til þess að bólusetning hafi valdið dauðsföllum hér á landi.
„Það var þessi eina athugun gerð hjá embætti landlæknis og þar kom í ljós að ekkert benti til tenginga þarna á milli.“