Ölsala handverksbruggara leyfð en ekki vefverslun

mbl.is/​Hari

Í stjórn­ar­frum­varpi Áslaug­ar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur dóms­málaráðherra um breyt­ing­ar á áfeng­is­lög­um, sem lagt var fram á Alþingi í gær, er kveðið á um að smærri brugg­hús­um verði leyft að selja öl á fram­leiðslu­stað.

Hins veg­ar er þar ekki veitt heim­ild til inn­lendr­ar net­versl­un­ar með vín í smá­sölu, líkt og upp­haf­leg drög frum­varps­ins gerðu ráð fyr­ir.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins má rekja þá breyt­ingu til and­stöðu sam­starfs­flokk­anna, bæði inn­an rík­is­stjórn­ar og þing­flokka. Málið velkt­ist mánuðum sam­an í rík­is­stjórn og var svo lengi á hæg­ferð í gegn­um þing­flokka fram­sókn­ar­manna og vinstri grænna. Inn­an þeirra lagðist meiri­hlut­inn gegn inn­lendri net­versl­un með áfengi, þrátt fyr­ir að sú breyt­ing horfði fyrst og fremst til jafnr­ar stöðu inn­lendr­ar og er­lendr­ar net­versl­un­ar. Íslensk­ir neyt­end­ur geta þegar keypt áfengi í smá­sölu frá er­lend­um net­versl­un­um í skjóli Evr­ópu­reglna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert