Margar flökkusögur er í gangi um samning heilbrigðisyfirvalda við lyfjaframleiðandann Pfizer en orðrómar hafa verið á þá leið að samningar séu í sjónmáli milli stjórnvalda og lyfjaframleiðandans um hjarðónæmistilraunir hér á landi á næstunni.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagðist ekki hafa fengið samningsdrög frá Pfizer og á meðan svo er liggi ekki fyrir hvort af verkefninu verður.
Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna.
Hann sagði ekkert liggja fyrir hvenær mögulegt bóluefni kemur eða hversu mikið af því. Sóttvarnalæknir kveðst munu greina frá málinu um leið og eitthvað liggur fyrir.