Aðstoða WHO við þróun bólusetningarvottorða

Frá bólusetningu við Covid-19.
Frá bólusetningu við Covid-19. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérfræðingar frá Origo aðstoða Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO við þróun á stafrænu bólusetningarvottorði. Ísland er fyrst þjóða til að gefa út stafrænt bólusetningarvottorð en lausnin, sem er þróuð af Origo, hefur vakið athygli víða um heim.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Bólusetningarverkefnið er tvíþætt en það snýr annars vegar að bólusetningum og hins vegar útgáfu bólusetningarvottorða.

„Við höfum unnið hörðum höndum síðustu vikur við lausnina sem heldur utan um bólusetningar. Þróunarvinnan gekk hratt fyrir sig og við teljum okkur geta brugðist í skyndi við breytingum sem koma síðar,“ er haft eftir Björk Grétarsdóttur, verkefnastjóra hjá Origo.

Ísland var fyrst þjóða til að gefa út bólusetningarvottorð og hafa nú þegar nokkur hundruð Íslendingar fengið vottorð.

„Bólusetningarvottorðin eru hluti af evrópskri samvinnu. Hægt er að sækja um vottorð um leið og seinni bólusetningu lýkur. Sótt er um vottorðið á Heilsuveru með rafrænum skilríkjum. Það hefur nýst okkur vel að nota Heilsuveru, sem búið er að leggja mikla vinnu í, fyrir Covid-19 verkefni,” er haft eftir Arnaldi Skúla Baldurssyni, vörustjóra Heilsuveru hjá Origo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert