Alls hafa Lyfjastofnun Íslands borist 352 tilkynningar vegna gruns um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Þar af eru 168 tilkynningar vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech, 120 vegna bóluefnis Moderna og 64 vegna bóluefnis AstraZeneca. Átján tilkynninganna eru alvarlegar.
Þetta kemur fram á vefsíðu Lyfjastofnunar.
Engar alvarlegar tilkynningar hafa borist vegna bóluefnis AstraZeneca, þrjár vegna bóluefnis Moderna og 15 vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech.
Hafa ber í huga að flestir hafa verið bólusettir með bóluefni Pfizer.
„Þar sem bóluefnin berast ekki á sama tíma er óhjákvæmilegt að hópar mismunandi að samsetningu fái ólík bóluefni. Það gerir beinan samanburð milli þeirra ómögulegan. Í fyrstu forgangshópum bólusetningar er meðal annars heilbrigðisstarfsfólk, en því ber skylda til að tilkynna um aukaverkanir samkvæmt lyfjalögum og hefur þessi skylda áhrif á fjölda tilkynninga, og þá til fjölgunar þeirra, að mati Lyfjastofnunar,“ segir á vef Lyfjastofnunar og jafnframt:
„Auk heilbrigðisstarfsmanna eru aldraðir einstaklingar fremstir í forgangi bólusetningar. Margir þeirra hafa undirliggjandi sjúkdóma. Því má búast við fleiri tilkynningum vegna bólusetningar í þeim hópi, en hins vegar þarf ekki að vera um orsakasamband að ræða milli bólusetningar og tilkynntra tilvika. Slíkt er metið í hverju tilfelli fyrir sig.“
Á vef Lyfjastofnunar kemur einnig fram að mikilvægt sé að hafa hugfast að fjöldi tilkynninga vegna gruns um aukaverkun segi ekki til um tíðni raunverulegra aukaverkana eftir bólusetningu eða öryggi bóluefna.
„Slíkar tilkynningar eru notaðar til að fylgjast með öryggi lyfja eftir að notkun þeirra hefst og er það gert m.a. með því að meta hvort líkur séu á því að orsakasamband sé milli lyfjanotkunar og þess tilviks sem tilkynnt er. Þannig er ekki víst að tilkynningarnar endurspegli raunverulegar aukaverkanir af bóluefnunum en það er metið í hverju tilfelli fyrir sig.“