Jarðskjálfti, sem mældist 5,0 stig, varð klukkan 2.01 í nótt. Upptök skjálftans voru við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga.
Um tuttugu mínútum áður varð jarðskjálfti af stærð 4,1 á sömu slóðum. Um klukkutíma fyrir þann skjálfta reið yfir minni skjálfti, af stærð 3,8 og einnig við Fagradalsfjall.
Sjö skjálftar yfir 3 stig hafa orðið eftir miðnætti í nótt og áttu þeir allir upptök sín við Fagradalsfjall.