„Þetta var ekki alveg það sem við þurftum,“ segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, spurður um álagið sem fylgir því að fá mögulegt hópsmit kórónuveiru ofan í jarðhræringar á Reykjanesskaga.
„Við hefðum gjarnan viljað einbeita okkur að Reykjanesskaganum en við erum með fullt af góðu fólki sem er að vinna í þessu. Menn skipta deginum bara á milli Covid og Reykjanesskagans,“ segir Víðir.
Eins og greint var frá í gær er mögulegt hópsmit af völdum breska afbrigðisins af Covid-19 er í uppsiglingu eftir að tveir greindust um helgina utan sóttkvíar með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar.
Þá er almannavarnadeildin einnig önnum kafin við að fylgjast með jarðhræringum á Reykjanesskaga sem gætu leitt af sér eldgos. Deildin einblínir helst á svæðið við Fagradalsfjall sem mögulegt gossvæði, ekki á fjögur eldsuppkomunæmissvæði eins og eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands.
„Þeir eins og aðrir vísindamenn hafa bent á að kvikan er á ferð á ákveðnum stað og það er auðvitað langlíklegast að ef gýs núna þá gjósi þar. Það eru engin ummerki um kviku annars staðar,“ segir Víðir sem bendir á að langlíklegasta staðsetningin fyrir gos sé á kvikugangi við Fagradalsfjall.
Íbúafundur var haldinn í Grindavík um helgina þar sem var farið „vel yfir málin“, að sögn Víðis.
„Síðan er verið að klára rýmingaráætlun fyrir Voga og aðra byggð á Reykjanesi. Fyrst og fremst erum við bara að horfa á atburðarásina sem á sér stað í Fagradalsfjalli. Hún kallar ekki á rýmingu eins og hún lítur út núna. Við fylgjumst bara með og erum með fundi mörgum sinnum á dag með vísindamönnum. Það er stór fundur vísindaráðs eftir hádegi í dag þar sem er farið yfir öll gögn sem er búið að safna síðustu sólarhringa.“
Þá er stöðugt unnið að því að fjölga mælitækjum á svæðinu. Víðir mælir með því að fólk fylgist vel með og horfi til þeirra sviðsmynda sem eru líklegastar.
„Vísindamenn eru að birta ýmis gögn, að sjálfsögðu, en það er mikilvægt í þessu að við horfum á þær sviðsmyndir sem eru líklegastar hverju sinni og við miðlum því alveg stöðugt.“