Mikil virkni hefur verið í syðsta hluta ganganna við Fagradalsfjall frá því um fimm í morgun segir Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofunni, en virknin er sú mesta sem hefur mælst í tvo sólarhringa.
Hún segir að skjálftarnir séu allir litlir en þetta er þriðja óróakviðan sem mælist á þessum slóðum. „Ég held að þetta sé til marks um það að gangurinn sé að stækka mjög hratt,“ segir Kristín í samtali við mbl.is. Mikil átök eigi sér stað í jarðskorpunni en um leið mjög staðbundin segir Kristín enn fremur.
Fylgst er grannt með stöðu mála á Reykjanesinu á Veðurstofu Íslands en að sögn Kristínar hefur dregið heldur úr virkninni nú þegar þetta er skrifað upp úr 6:30.
Tilkynning frá Veðurstofu Íslands: Um kl. 5:20 í morgun jókst virknin við Fagradalsfjall, syðst í ganginum. Óróahviða mælist nú á svæðinu en dregið hefur úr henni. Virknin er mjög staðbundin syðst í ganginum og er líklega til marks um stækkun gangsins.