Skjálftinn reyndist 5 stig

Kort/Veðurstofa Íslands

Harður jarðskjálfti sem fannst víða á suðvesturhluta landsins varð klukkan 12:34. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands voru upptök hans í sunnanverðu Fagradalsfjalli. Enginn órói hefur mælst í kjölfarið.

Þetta er stærsti skjálftinn á svæðinu síðan 12. mars kl. 07:43, sá var einnig 5 að stærð. Í dag 14. mars hafa mælst rúmlega 1.400 jarðskjálftar sjálfvirkt. Stærsti skjálftinn mældist kl. 04:40 af stærð 4,2 við Fagradalsfjall.

Í gær 13. mars mældust um 2.600 jarðskjálftar, þar af mældust 20 skjálftar stærri en 3. Stærsti skjálftinn mældist 4,6 að stærð kl. 01:34 við suðvesturenda Fagradalsfjalls og fannst hann víða, á Reykjanesskaga, í Borgarnesi og austur í Fljótshlíð. Um kvöldið kl. 22:06 mældist svo jarðskjálfti af stærð 4,1 einnig við Fagradalsfjall.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert