Jarðskjálfti 4,3 að stærð fannst vel á höfuðborgarsvæðinu nú klukkan 22:32 og í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að hann hafi fundist alla leið upp í Borgarfjörð.
Alls hafa um 1.800 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga í dag, þar af voru sjö þeirra 3 að stærð eða stærri. Virknin í dag hefur að mestu leyti verið við Fagradalsfjall og í kvöld hafa flestir skjálftar verið staðsettir við NA-vert Fagradalsfjall, eins og segir í tilkynningu.
Í gær mældust um 2.400 skjálftar og enn fleiri á föstudag og laugardag eða allt að 2.800 skjálftar á dag.