Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur mun funda um tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins eftir hádegi í dag. Í framhaldinu verður væntanlega boðað til blaðamannafundar.
Þetta staðfestir Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, í samtali við mbl.is.
„Ríkisstjórnin á eftir að fá tillögur frá Þórólfi. Þegar ríkisstjórnin fær þær tillögur verður haldinn ríkisstjórnarfundur og svo væntanlega blaðamannafundur í framhaldinu,“ segir Lára Björg.
Enn er óljóst klukkan hvað ríkisstjórnin mun funda og hvenær blaðamannafundurinn verður haldinn.
17 smit greindust innanlands í gær. Af þeim voru 11 smit meðal barna í Laugarnesskóla.