Vaxandi norðan- og norðaustanátt er á gossvæðinu, 13-18 m/s með hríðarveðri undir hádegi og gasmengun berst því einkum til suðurs og suðvesturs frá gosstöðvunum. Stikaða gönguleiðin er suður af eldgosinu samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni og má því búast við því að það sé gasmengun yfir gönguleiðinni. Greint var frá því í fréttum RÚV klukkan 6 í morgun að fólk sé þegar farið að koma að gosstöðvunum og fólki ráðið frá því að ganga stikuðu leiðina núna.
Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að stöðug virkni hafi verið í eldgosinu í alla nótt og áfram sé virkni í báðum gígum. Ekki hafa verið markverðir jarðskjálftar í nótt en áfram smá skjálftavirkni á svæðinu.
Hér er hægt að skoða kort sem sýnir hvernig gasmengunin er á svæðinu
Sæl öll, nú þurfum við aðeins að fara yfir hlutina. Útlit er fyrir langvarandi eldgos í Geldingadal. Sú staðreynd bíður...
Posted by Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands on Miðvikudagur, 24. mars 2021