Kristín Jónsdóttir, hópstjóri hjá náttúruvárvöktun Veðurstofunnar, segir að enginn augljós fyrirvari hafi verið áður en nýja sprungan í Geldingadölum opnaðist. Ný sprunga opnaðist í kringum hádegi í dag og verið er að rýma gossvæðið.
„Svona sprunguopnanir gerast greinilega án mikils fyrirvara. Við vissum svo sem alveg að næst gosstöðvunum liggur kvikan grunnt. En það kemur dálítið á óvart að hún sé að brjóta sér leið akkúrat á þessum tímapunkti. Hugsanlega hefur það að gera með að gígarnir eru orðnir það háir að það er auðveldara fyrir kvikuna að brjóta sér leið þarna,“ segir Kristín í samtali við mbl.is.
„Þetta er framhald af gossprungunni og við erum búin að vita það allan tímann að þarna troði sér inn kvika eftir mjög löngum gangi sem liggur þarna marga kílómetra,“ segir Kristín.