Tvö smit greindust innanlands í gær og hvar hvorugur þeirra í sóttkví við greiningu. Einn greindist með Covid-19 á landamærunum að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Mun færri hafa mætt í sýnatöku um helgar en ekki eru gefnar upp aðrar upplýsingar um smit um helgar en það hversu mörg smitin eru.
Þetta er í takt við það sem Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði í samtali við mbl.is í gær. Vegna þess að smit greinast utan sóttkvíar sé líklegt að fleiri smit eigi eftir að greinast næstu daga.
Aðeins eitt smit greindist innanlands á föstudag og viðkomandi var í sóttkví. Spurður út í þessar jákvæðu fréttir sagði Víðir í gær að þau séu alltaf með ákveðinn vara á sér ekki, síst vegna þess að undanfarna daga hafi greinst smit utan sóttkvíar og fjölmargir farið í sóttkví út frá þeim smitum. „Við viljum því bíða og sjá til í fjóra til sjö daga áður en dregnar eru miklar ályktanir en það er sá tími sem tekur veiruna að kalla fram einkenni,“ segir Víðir.
Sagan sýnir að 3-5% þeirra sem fara í sóttkví smitast í kjölfarið af Covid-19 þannig að það kæmi Víði ekki á óvart að hærri smittölur kæmu innanlands næstu daga.