Sniglarnir leggja af stað í sína árlegu mótorhjólakeyrslu klukkan 12.30 í dag en tilgangurinn með keyrslunni er að vekja athygli fólks á því að mótorhjól séu mætt aftur á göturnar. Fimmtíu hjól eru saman í hverjum hópi og voru ökumenn beðnir um að vera grímuklæddir.
Að sögn nokkurra ökumanna í hópnum er fínasta stemmning á meðal mótorhjólamannanna og spyrja þeir: „Hvað er sýnilegra en 1.000 mótorhjól?“