Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri í Suðurnesjabæ, leiðir lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi, en listinn var samþykktur á fjölsóttum fundi á Hótel Smáratúni í Fljótshlíð í dag.
Hólmfríður sagði í ræðu á fundinum að nú þyrfti að halda á lofti góðum verkum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið. Verkefnin framundan væru mörg og stór, mikilvægt væri að vinna gegn fátækt, kynbundnu ofbeldi, mismunun og atvinnuleysi í kjölfar covid.
Frá þessu greinir hreyfingin í tilkynningu.
Segir þar að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður VG og sérstakur gestur fundarins, hafi tekið í sama streng og Hólmfríður, minnt á þriggja þrepa skattkerfi og ýmsar aðgerðir til jöfnunar sem hrint hafi verið í framkvæmd í ríkisstjórn undir forystu VG og Katrínar Jakobsdóttur.
Guðmundur Ingi ræddi einnig styttingu vinnuvikunnar, lengingu fæðingarorlofs, réttlátara heilbrigðiskerfi og stór skref á vinnumarkaði. Þetta er grunnur sem við byggjum á og segir fólkinu í landinu hvert við viljum fara, sagði Guðmundur Ingi meðal annars í ræðu sinni.
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftártungu er í öðru sæti listans, Sigrún Birna Steinarsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna frá Hornafirði, er í þriðja sæti og Rúnar Gíslason lögregluþjónn er nýr inn í fjórða sæti listans. Helga Tryggvadóttir, námsráðgjafi er í fimmta sæti. Ný stjórn kjördæmisráðs Suðurkjördæmis var kosin á fundinum og var Valgeir Bjarnason á Selfossi endurkjörinn formaður með lófataki.
Ari Trausti Guðmundsson, sem situr á þingi fyrir Vinstri græn, vermir heiðurssæti listans.
Listinn: