Ný stjórn Félags háskólakvenna var kjörin á aðalfundi félagsins í gær. Ásta Dís Óladóttir var kjörin formaður og Áshildur Bragadóttir varaformaður. Þá hlaut Guðmunda Smáradóttir kjör sem ritari, Vilborg Einarsdóttir var kjörin gjaldkeri og Margrét Kristín Sigurðardóttir meðstjórnandi. Varamenn eru Ruth Elfarsdóttir og Katrín Kristjana Hjartardóttir.
Félag háskólakvenna sem var stofnað árið 1928. Félagið stendur meðal annars fyrir vali á Háskólakonu ársins og veitir rannsóknarstyrki auk þess að stuðla að umræðu og fræðslu.
Háskólamenntaðir einstaklingar sem útskrifast hafa úr íslenskum eða erlendum háskólum eru gjaldgengir í félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu.