Landsþing Miðflokksins verður haldið í dag og hefst klukkan 13 á fjarfundaforritinu Zoom.
Stefnuræða formanns Miðflokksins, Sigmundar Davíðs, hefst klukkan 13:05 og má sjá beint streymi hér að neðan.
Kosið verður í þrjú laus sæti í stjórn flokksins og eru fimm í kjöri, þar af þrír þingmenn flokksins.
Þingi verður svo frestað til 14. ágúst þar sem fundi verður framhaldið og við höldum síðari hluta Landsþingsins á Hilton Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut.