„Þetta yrðu vonbrigði ef þetta verður niðurstaðan,“ segir Sigríður Á. Andersen þingmaður í samtali við mbl.is eftir fyrstu tölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Sigríður er nú í áttunda sæti en hún sóttist aftur á móti eftir öðru sæti. Hún bætir þó við að þetta séu bara fyrstu tölur og margt geti breyst.
Sigríður segir prófkjörið hafa verið ágætt á heildina litið en hún hafi ekki notast við dýra markaðssetningu eða kostaða markaðssetningu af neinu tagi. „Maður bara leggur störf sín í dóm kjósenda.“