Á öðrum tímanum eftir miðnætti í nótt bárust lögreglu tvær tilkynningar, með um tíu mínútna millibili, um menn sem dottið hefðu af rafmagnsskútum.
Annar þeirra datt illa í miðborginni, að sögn lögreglu. Hinn féll til jarðar í Kópavogi og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku.