Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sigraði í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi. Haraldur Benediktsson, oddviti flokksins í kjördæminu, varð í öðru sæti. Þetta kemur fram í lokatölum sem lesnar voru upp fyrir skömmu.
Atkvæði í prófkjörinu greiddu 2.289 og gild atkvæði voru 2.232. Þau skiptust þannig:
1. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 1.347 atkvæði í fyrsta sæti.
2. Haraldur Benediktsson, 1.061 atkvæði í 1.-2. sæti.
3. Teitur Björn Einarsson, 1.190 atkvæði í 1.-3. sæti.
4. Sigríður Elín Sigurðardóttir, 879 atkvæði í 1.-4. sæti.
Þórdís hlaut 60% atkvæða í 1. sæti en Haraldur 35%. Bæði sóttust eftir 1. sætinu. Af heildaratkvæðum fékk Þórdís 85%, Teitur Björn, sem hafnaði í 3. sæti, fékk 62% og Haraldur fékk 61%.
Í fyrstu tölum í kvöld var Teitur Björn í 2. sæti en Haraldur í því 3. Þetta snerist við í öðrum tölum og í lokatölum var Haraldur enn í 2. sæti og munaði þá töluverðu á honum og Teiti Birni. Haraldur endaði með 1.061 atkvæði í 2. sæti en Teitur Björn fékk 849 atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo þingmenn í Norðvesturkjördæmi.