Boðið Pfizer í stað AstraZeneca

Bólusetning í Laugardalshöll.
Bólusetning í Laugardalshöll. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einstaklingum sem áttu að fá seinni skammt af AstraZeneca-bóluefninu í dag i Laugardalshöll hefur verið boðið Pfizer í staðinn þar sem fyrra efnið kláraðist fyrr í dag samkvæmt upplýsingum frá fólki sem átti bókað í bólusetningu í dag. 

Í gær voru 12.611 manns bólu­sett­ir með AstraZeneca en efnið barst til landsins síðustu helgi. 

Ekki náðist í Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, við vinnslu fréttar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert