Ekki stendur til að bjóða upp á fyrstu skammta með Pfizer-bóluefni fyrir óbólusetta, þ.m.t. börn 12–15 ára, á sumarleyfistíma heilsugæslustarfsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni á vef embættis landlæknis. Sumarleyfistíminn er hafinn, hann hófst 28. júní og stendur hann til loka ágústmánaðar.
„Mögulega verða þó gerðar einhverjar fyrstu bólusetningar með Pfizer fyrir einstaklinga í áhættuhópum sem vegna læknisfræðilegra ástæðna hafa ekki getað þegið bólusetninguna þegar hún var boðin fyrr á árinu,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að mæla með almennri bólusetningu gegn Covid-19 fyrir börn á aldrinum 12–15 ára.
„Meta þarf líkur á alvarlegum veikindum vegna Covid-19 á móti hættu á alvarlegum aukaverkunum og ekki liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um alvarlegar aukaverkanir til að réttlæta almenna bólusetningu hraustra barna sem eru í afar lítilli hættu á alvarlegum veikindum vegna Covid-19. Ef til þess kemur að mælt verði með almennri bólusetningu barna á grunnskólaaldri er líklegt að hún verði boðin í gegnum skólaheilsugæslu eins og aðrar almennar bólusetningar barna á grunnskólaaldri.“