Beittu ekki óþarfa valdi

Myndir náðust af handtökunni.
Myndir náðust af handtökunni. Ljósmynd/Refugees In Iceland

Í til­kynn­ingu frá embætti rík­is­lög­reglu­stjóra kem­ur fram að farið hafi fram frumskoðun á mynd­efni af at­viki þar sem tveir palestínsk­ir hæl­is­leit­end­ur voru hand­tekn­ir af lög­reglu í mót­töku Útlend­inga­stofn­un­ar.

Bend­ir sú skoðun til að ekki hafi verið um óþarfa eða óhóf­lega vald­beit­ingu að ræða, miðað við þær aðstæður sem sköpuðust á vett­vangi.

Ákvörðun um vald­beit­ingu sé ávallt tek­in sam­kvæmt mati stjórn­anda á vett­vangi, m.a. með það að mark­miði að tryggja ör­yggi hins hand­tekna eða annarra. Þá staðfest­ir embættið að ein­stak­ling­arn­ir sem um ræðir eru farn­ir af landi brott í sam­ræmi við ákvörðun viðeig­andi yf­ir­valda um frá­vís­un þeirra.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert