Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar á morgun.
„Í ljósi COVID-19 smita nú í vikunni má segja að staðan hér á landi sé varhugaverð og því hafa Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis ákveðið að boða til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, fimmtudaginn 15. júlí,“ segir í tilkynningu.
Sjö vikur eru frá síðasta upplýsingafundi sem fór fram 27. maí. Fimm kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, öll utan sóttkvíar. Þrjú smitanna greindust hjá fullbólusettum og tvö hjá hálfbólusettum.
Á fundinum fara Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19 faraldursins hér á landi síðastliðna daga.
Ekki hefur verið ákveðið hvort fleiri fundir verða haldnir í framhaldi af þessum fundi.