Nexus lokað vegna smita

Starfsmaðurinn er greindist smitaður af Covid-19 var í afgreiðslu í …
Starfsmaðurinn er greindist smitaður af Covid-19 var í afgreiðslu í Kringlunni á mánudag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Báðar verslanir Nexus eru lokaðar í dag en einn starfsmanna greindist smitaður af Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu á facebooksíðu Nexus. 

Starfsmaðurinn sem um ræðir var í afgreiðslu á mánudag í Kringlunni og hina daga vikunnar var hann á vakt í Glæsibæ. Þá kom fram í tilkynningunni að starfsmaðurinn hefði unnið í bakenda verslunarinnar og því verið í takmörkuðum samskiptum við viðskiptavini þá daga sem hann var að störfum í Glæsibæ. 

Vísir greindi fyrst frá málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert