Einstaklingurinn sem liggur á gjörgæslu er undir sextugu, með undirliggjandi áhættuþætti og hefur verið í aðhlynningu á Covid-19-göngudeild Landspítalans. Þetta staðfestir Runólfur Pálsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild spítalans.
Sjúklingurinn telst óbólusettur en Runólfur bendir á að einstaklingar sem voru bólusettir fyrir viku teljist einnig óbólusettir enda séu áhrif bólusetningarinnar ekki komin fram fyrr en að tveimur til þremur vikum liðnum.