Stjórn samtaka fyrirtækja í veitingarekstri lýsa yfir áhyggjum af framtíðarsýn Sóttvarnalæknis þar sem hann leggur til að veitingastaðir, krár og skemmtistaðir loki klukkan 23:00 öll kvöld vikunnar næstu misseri.
Samtökin segjast skora á sóttvarnalækni að veita haldbær rök, studd gögnum og tölulegum upplýsingum um nauðsyn þess að skerða afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða svo verulega með tilheyrandi tjóni fyrir greinina.
„Þessi framtíðarsýn er eins og blaut tuska framan í stóran hluta veitingamarkaðarins sem hefur verið meira og minna óstarfhæfur frá því að veiran kom fyrst til landsins,“ segir í yfirlýsingunni.
„Krár og skemmtistaðir hafa þurft að lúta ströngustu sóttvarnarreglum með tilliti til opnunartíma, gestafjölda, skráningu gesta og grímuskyldu. Á þeim tíma hafa ekki verið færð fyrir því nein rök að fleiri smit hafi komið upp hjá fyrirtækjum á veitingamarkaði en hjá öðrum hópum í samfélaginu.“
Þá lýsa samtökin yfir áhyggjum af því að skemmtunin færist einfaldlega annað en þau telja ljóst að fólk muni ekki hætta að hittast og skemmta sér sér heldur færa sig í heimahús eða annað húsnæði þar sem ekkert eftirlit er.
Þar muni myndast svipuð eða meiri hætta á hópsmiti og nú þegar er fyrir hendi á veitinga- og skemmtistöðum.
„Í greininni starfa um 10.000 manns — að stórum hluta til ungt fólk sem mun missa vinnu við slíkar aðgerðir. Auk þess gerir ófyrirsjáanleikinn , sem blasir við greininni, henni ókleift að fara inni í veturinn.“
„Það er algerlega órökstutt hvers vegna þörf sé á svo hörðum aðgerðum sem beinast að veitingamarkaðnum þegar hundruð manna hópast á aðra staði, t.d. á alþjóðaflugvöllinn í Keflavík, á sundstaði, í líkamsræktarstöðvar, verslanamiðstöðvar og á íþróttaleiki.“