Katrín svarar Sigmundi um fjölda kynja

Katrín svarar því að samkvæmt lögum eru kynin ekki lengur …
Katrín svarar því að samkvæmt lögum eru kynin ekki lengur tvö, kona og karl, heldur opnar skilgreiningin á hugtakinu í lögum á þann möguleika að kyn séu fleiri.

„Í lögum um kynrænt sjálfræði er kveðið á um óskoraðan rétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í skriflegu svari sínu við fyrirspurn Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar um kyn.

Fyrirspurn Sigmundar var „hversu mörg eru kyn mannfólks að mati ráðuneytisins?“

Katrín svarar því að samkvæmt lögum eru kynin ekki lengur tvö, kona og karl, heldur opnar skilgreiningin á hugtakinu í lögum á þann möguleika að kyn séu fleiri.

„Samkvæmt sömu lögum er hlutlaus skráning kyns heimil og ber aðilum sem skrásetja kyn að gera ráð fyrir því að einstaklingar geti skráð kyn sitt með þrennum hætti, kona, karl og kynhlutlaus.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Hugtakið kyn er skilgreint í framangreindum lögum sem safnhugtak sem nær meðal annars yfir kyneinkenni, kyngervi, kynvitund og kyntjáningu“. Skilgreining kyns ræðst því ekki eingöngu af líffræði,“ segir Katrín í svari sínu.

Opinber skráning kyns nú þrenns konar

Katrín segir opinbera skráningu kyns samkvæmt lögum nú þrenns konar og opnar hlutlaus skráning kyns á þann möguleika að einstaklingur sem telur sig ekki falla undir hefðbundna flokkun í konu eða karli geti nú skilgreint sig sem kynhlutlausan samkvæmt opinberum gögnum.

Frá 6. janúar 2021 hefur verið hægt að óska eftir hlutlausri skráningu kyns í þjóðskrá. Katrín segir að í samvinnu við samtökin '78 ákvað Þjóðskrá Íslands að einstaklingar sem óska eftir hlutlausri skráningu kyns í þjóðskrá skyldu skráðir „kynsegin/annað“.

Talið er að um þetta heiti megi ná sem mestri sátt innan hinsegin samfélagsins og að flestir einstaklingar geti samsamað sig því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert