Fundi KSÍ er lokið í dag en fundað verður aftur í fyrramálið klukkan tíu. Þetta staðfestir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, við mbl.is. Hún vildi ekki tjá sig nánar um málið eða framvindu fundarins.
Fundarhöld höfðu staðið yfir frá klukkan tólf á hádegi í dag og var fundað um ofbeldismál innan sambandsins í kjölfar fregna Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi er Þórhildur Gyða Arnarsdóttir greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi af hálfu landsliðsmanns á skemmtistað árið 2017.
Faðir Þórhildar tilkynnti málið til KSÍ hálfu ári síðar sem bauð henni þá á fund þar sem henni bauðst að skrifa undir þagnarskyldusamning gegn miskabótum. KSÍ hafnar því að lögmaðurinn hafi verið á vegum sambandsins.
Deginum áður en RÚV birti viðtal sitt við Þórhildi Gyðu hafði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, fullyrt í viðtalsþættinum Kastljósi að sambandinu hefði aldrei borist formleg kvörtun vegna kynferðisofbeldis. Guðni sagði í kvöldfréttum í gær að hann hefði misminnt.