Ásgeir Ásgeirsson einn stjórnarmanna KSÍ tilkynnti í færslu á Facebook fyrr í kvöld um afsögn sína. Skömmu síðar tilkynnti sitjandi stjórn að hún hefði ákveðið að segja af sér.
Ásgeir segir í færslunni síðustu daga hafa verið erfiða hjá KSÍ.
„Sem stjórnarmaður hefur drullan dunið yfir mann án þess að ég hafi gert nokkuð af mér.“
„Ég er búinn að vera í sjálfboðavinnu fyrir íþróttahreyfinguna í yfir 30 ár og hef unnið að heilindum og þetta er þakklætið. Ég á mikið af vinum í gegnum þessi ár og það mun ég taka með mér,“ skrifar Ásgeir og bætir við að hann vilji þakka starfsfólki og stjórn KSÍ, Guðna Bergssyni, Klöru Bjartmarz, leikmönnum og starfsfólki landsliða fyrir frábært samstarf.
„Ég get ekki boðið mér og minni fjölskyldu uppá þann viðbjóð sem hefur verið sagt um okkur í stjórn KSÍ,“ skrifar Ásgeir að lokum.