25 kórónuveirusmit greindust í gær. Daginn þar áður voru þau 37 talsins.
Af þeim sem smituðust eru níu ekki bólusettir, eða tæp 40%. Fimmtán eru bólusettir. Þá stendur einn út af en ekki eru gefnar upplýsingar um bólusetningarstöðu viðkomandi á vefnum covid.is.
Í því samhengi ber að nefna að 13% landsmanna, 12 ára og eldri, eru ekki fullbólusett.