Rostungurinn, sem lét sig liggja í makindum á bryggjunni í Höfn í Hornafirði í gær, er að öllum líkindum þekktur vandræðagemsi sem valdið hefur milljóna tjóni erlendis.
Þar ytra hefur honum verið gefið nafnið Wally, eða Valli.
Írski hvala- og höfrungahópurinn bendir á þetta á vef sínum og tekur fram að myndir af rosmhvalnum, þar sem hann liggur á bryggjunni hér á landi, gefi þetta til kynna.
„Við bíðum eftir fleiri myndum sem gætu hjálpað okkur að ganga úr skugga um þetta, en myndirnar hingað til staðfesta að dýrið er á svipuðum aldri miðað við lengd skögultanna. Einnig sé fölur blettur á vinstri hreifa rostungsins, rétt eins og hjá Valla.
Á undanförnum mánuðum hefur Valli herjað á fjölda smábáta úti fyrir ströndum Cork á Írlandi. Selavinafélag Írlands ákvað að koma rostungnum til hjálpar með því að útvega slöngubát eða svokallaða tuðru sem Valli gæti klifrað upp á og hvílt sig.
Ágangur Valla í leit sinni að hvíldarstað hefur orðið til þess að tveir bátar hafa sokkið úti fyrir ströndum Írlands.
Nú virðist hann þó vera að nálgast náttúruleg heimkynni sín og binda má vonir við að hann geti unað sér hvíldar enn norðar.