Erna Bjarnadóttir mun ekki fylgja vistaskiptum Birgis Þórarinssonar yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
Þetta kom fram í viðtali við Ernu í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Spurð hvort hún ætli yfir í Sjálfstæðisflokkinn svarar Erna því neitandi. „Ég er ekki skráð í Sjálfstæðisflokkinn og er ekki á leiðinni þangað.“
Erna kveðst ekki ósátt við ákvörðun Birgis og vill hún ekki bæta við umræðu fjölmiðla.
Furðar hún sig á þeim áhuga sem hún hefur hlotið vegna vistaskipta Birgis enda hafa varaþingmenn annarra þingmanna sem skipt hafa um flokk á miðju kjörtímabili ekki verið jafn eftirsóttir af fjölmiðlum.