Rebekka Líf Ingadóttir
Þau Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telja hvorugt að skipti Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn hafi áhrif á stjórnarmyndunarviðræður flokkanna þriggja.
Eftir skipti Birgis hefur Sjálfstæðisflokkurinn 17 þingmenn á Alþingi, Framsóknarflokkurinn hefur 13 þingmenn og VG hefur 8. Stjórnarmeirihlutinn hefur því 38 þingmenn.
Sigurður Ingi sagði við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum í dag að flokkaskipti Birgis breyttu ekki neinu í hans huga hvað varðar viðræðurnar. Katrín Jakobsdóttir virðist vera sammála honum og segist ekki halda að skiptin breyti neinu.
„Þetta er auðvitað mjög sérkennilegt þegar þingmaður sem er í framboði og nær kjöri fyrir einhvern flokk skiptir um flokk áður en þing er kallað saman,“ segir Katrín.
„Hann hefur lýst sinni hlið á því og hans félagar eru ekki sammála og það er ekki nokkur leið fyrir mig að leggja eitthvert mat á þetta, þar sem þetta auðvitað varðar ekki minn flokk en þetta er auðvitað sérkennileg tímasetning.“