„Það sem ég hef sagt og menn hafa svosem svona túlkað það á ýmsa vegu, er að ef við fáum skæðan inflúensufaraldur núna í vetur að þá gæti það minnkað eða komið niður á getu spítalans til þess að fást við Covid.“
Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, en eins og greint hefur verið frá skilaði hann minnisblaði í dag til heilbrigðisráðherra, þar sem hann segir stjórnvöld standa frammi fyrir þremur möguleikum hvað varðar sóttvarnir, halda takmörkunum óbreyttum, aflétta í skrefum áfram eins og gert hefur verið eða að aflétta öllum takmörkunum.
Þórólfur hefur að undanförnu sætt gagnrýni fyrir að vera tregur til að leggja til tilslakanir. Fyrr í dag vísaði hann til föðurhúsanna ummælum Hildar Björnsdóttur borgarfulltrúa um að hann reki hræðsluáróður.
Hildur svaraði því og sagðist standa við ummæli sín.
Í samtali við mbl.is segir Þórólfur að líta þurfi til annarra smitsjúkdóma en Covid-19.
„Ekki bara að við séum að hafa einhverjar takmarkanir út af öllum pestum sem eru í gangi heldur þurfum við að hugsa aðeins lengra – hvaða möguleika höfum við á að fást við Covid ef að mikið álag kemur á spítalann af völdum annarra pesta.“
Þórólfur hefur sagst horfa mest til stöðunnar á spítalanum hvað varðar afléttingar og segir að eftir bylgjuna sem kom í kjölfar afléttinganna í sumar hafi fjöldi innlagna á spítalann ráðið úrslitum um það að settar voru aftur á takmarkanir.
„Ég held að menn tali dálítið þannig að út af útbreiddum bólusetningum, sem svo sannarlega eru að gera sitt, þá sé engin hætta á að við fáum hér faraldur,“ segir Þórólfur.
„Við fengum faraldur og vorum vel bólusett í sumar, sjötíu prósent landsmanna voru bólusett í sumar þegar við afléttum öllu og við fengum samt sem áður þessa bylgju, þannig við þurfum að horfa á alla þessa reynslu og reyna að læra af henni.“
Spurður hvort hann hafi áhyggjur af öðrum afbrigðum sem talin eru vera skæð, í samanburði við Delta-afbrigðið svokallaða segist Þórólfur ekki halda það.
„Það hafa ekki komið, svo ég hafi heyrt af, önnur afbrigði sem menn hafi áhyggjur af en auðvitað eru menn alltaf að fylgjast með því. Hér á landi er þetta nánast eingöngu Delta-afbrigðið sem hefur komið hingað inn.“