Landsmenn þurfa ekki að missa svefn yfir nýju afbrigði kórónuveirunnar, SARS-COV-2, enda er ekki búið að færa sönnur fyrir því að það meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við mbl.is.
„Það er ýmislegt sem bendir til þess að þetta afbrigði sé verra en önnur afbrigði en það hefur ekki verið sannað ennþá,“ segir hann.
Þrátt fyrir það telur Kári fulla ástæðu til þess að vera áfram á varðbergi og fylgjast með þróun faraldursins og nýja afbrigðisins.
„Við eigum að halda áfram að raðgreina veiruna sem kemur til Íslands en ég held að það væri fullmikið í það lagt að fara láta af svefni yfir þessu.“
Heilbrigðisyfirvöld hér á landi skoða nú að kaupa allt að 1.500 skammta af lyfinu molnupiravir. Lyfið er í töfluformi sem gerir mönnum kleift að nýta það utan spítalanna og er sagt að lyfið geti fækkað innlögnum vegna COVID-19 verulega.
Inntur eftir því segist Kári trúa því að lyfið muni koma að gagni í baráttunni við veiruna og að 1.500 skammtar séu „skynsamleg“ byrjun.
„Ef þetta hefur komið að gagni í tilraunum hjá Pfizer þá tel ég mjög líklegt að það komi að gagni hjá okkur. Það er mjög skynsamlegt að eiga þetta lyf til þess að geta gripið til ef menn lenda í vandræðum.“
135 greindust með kórónuveiruna innanlands í fyrradag, þar af voru 72 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 141 smit greinst í fyrradag, þar af sex á landamærunum.
76 þeirra sem greindust voru óbólusettir, 55 fullbólusettir og bólusetning var hafin hjá hjá fjórum.
19 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.
Tekin voru 3.426 sýni, þar af 1.733 einkennasýni. 1.728 eru nú í einangrun vegna Covid-19 og 2.074 í sóttkví.