Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur við Krónuna á Akrabraut í Garðabæ.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er um minniháttar áverka að ræða og er nú unnið að hreinsunarstarfi. Því má búast við einhverjum umferðartöfum.