Bergvin Gíslason varð vitni að skemmtilegu atviki sem átti sér stað í apóteki þar sem starfsmaður sneri vörn í sókn vegna frekju í viðskiptavini.
Bergvin segir í samtali við mbl.is að hann vilji ekki gefa upp í hvaða apóteki þetta hafi gerst. Hann staðfestir þó að ekki sé um uppspuna að ræða, en hann greindi fyrst frá atvikinu á Facebook í gær.
Segir hann að nokkuð mikið hafi verið að gera í apótekinu og töluvert af eldra fólki meðal viðskiptavina. Hann ásamt fleirum hafi beðið eftir afgreiðslu þegar maður um fertugt labbaði inn. Lýsing Bergvins verður að teljast nokkuð góð.
„Hárvörur í hárinu, smá tan, mikill rakspíri, slimfit gallabuxur, rúllukragabolur og jakki. Og auðvitað grímulaus.“
Maðurinn gekk því næst beint að afgreiðsluborðinu og vildi fá afgreiðslu strax. Var honum þá bent á að aðrir væru á undan honum og hann gæti því tekið sér miða og sett upp grímu. Kvaðst hann ekki hafa tíma til þess og vildi fá afgreiðslu á undan þeim sem biðu.
Stúlkan sem vann í apótekinu, að sögn Bergvins sennilegast um tvítugt, sagði þá við vinnufélaga sinn: „Gætir þú nokkuð hjálpað mér, hann er að fara í andnauð.“
Samstarfsmaðurinn skildi hvorki upp né ofan í henni fyrr en hún bætti við með rólyndistóni:
„Hann er að kafna úr frekju.“
Maðurinn fór, ef marka má færslu Bergvins, út með „skottið á milli lappana“. Frásögn hans má lesa hér fyrir neðan.