Gilda aðrar reglur um þá sem fengu Janssen?

Samkvæmt orðalagi reglugerðar virðast þeir sem upphaflega voru bólusettir með …
Samkvæmt orðalagi reglugerðar virðast þeir sem upphaflega voru bólusettir með Janssen og þegið hafa einn örvunarskammt, þó ekki falla undir rýmkun á reglum um sóttkví. AFP

Umboðsmaður Alþing­is hef­ur óskað eft­ir upp­lýs­ing­um frá heil­brigðisráðherra um hvort staðið hafi til að gera grein­ar­mun á fram­kvæmd sótt­kví­ar bólu­settra eft­ir því hvaða bólu­efni viðkom­andi hafi fengið. Þá spyr hann hvaða gögn eða aðrar upp­lýs­ing­ar hafi legið til grund­vall­ar slíku mati.

Greint hef­ur verið frá því að þeir sem hafa verið bólu­sett­ir með þrem­ur skömmt­um af bólu­efni, a.m.k. hálf­um mánuði fyr­ir ber­skjöld­un gagn­vart smiti vegna Covid-19, sæti ekki sömu tak­mörk­un­um í sótt­kví sam­kvæmt reglu­gerð heil­brigðisráðherra, að því er fram kem­ur á vef umboðsmanns. 

„Sam­kvæmt orðalagi reglu­gerðar sem sett var 7. janú­ar virðast þeir sem upp­haf­lega voru bólu­sett­ir með Jans­sen, sem fer fram með ein­um skammti bólu­efn­is í stað tveggja, og þegið hafa einn örvun­ar­skammt, þó ekki falla und­ir rýmk­un á regl­um um sótt­kví. Með grunn­regl­ur ís­lensks rétt­ar um jafn­ræði og meðal­hóf í huga og þær kröf­ur sem gera verður á þeim grund­velli til setn­ing­ar stjórn­valds­fyr­ir­mæla með heim­ild í sótt­varna­lög­um, hef­ur umboðsmaður óskað eft­ir of­an­greind­um upp­lýs­ing­um fyr­ir 19. janú­ar nk. Í kjöl­farið verður tek­in ákvörðun um hvort til­efni sé til að taka málið til nán­ari at­hug­un­ar,“ seg­ir umboðsmaður Alþing­is. 

Hér má lesa bréfið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka