Umhverfisstofnun hefur endurnýjað starfsleyfi líftæknifyrirtækisins Ísteka ehf. sem vinnur hormónalyf fyrir svín úr blóði fylfullra mera.
Umhverfisstofnun barst umsagnir frá 237 aðilum er varðar starfsleyfið en í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að umsagnirnar hafi fyrst og fremst varðað blóðtökuna sjálfa.
Ísteka gaf út tilkynningu í desember þar sem sagt var frá ákvörðun um að rifta samningum við bændur vegna ólíðandi meðferðar hrossa.
„Umhverfisstofnun bendir á að starfsleyfið sem um ræðir varðar lyfjaframleiðslu í tilgreindri starfsstöð rekstraraðila og nær ekki til birgja eða öflunar blóðs þess er rekstraraðili vinnur með,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar.
Þá er bent á að Matvælastofnun fari með eftirlit með lögum um dýravelferð.
Starfsleyfið felur í sér skilyrði um stjórnun á losun mengunarefna og vöktun og gildir til ársins 2038. Með því er Ísteka heimilt að framleiða allt að 20 kg á ári af lyfjaefni úr allt að 600 tonnum af blóði hryssa.