Kona á tíræðisaldri með Covid-19 lést á legudeild Landspítalans í gær. Þetta kemur fram á vef spítalans.
51 hefur nú alls látist með Covid-19 frá upphafi faraldursins hér á landi.
36 sjúklingar liggja inni á Landspítala með Covid-19. Fjölgað hefur um einn frá því í gær.
Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 63 ár.
7.760 sjúklingar eru með staðfest smit og þar með á Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.675 börn.
Covid-sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 250.