Bónus fylgir á eftir Krónunni

Grímuskylda verður afnumin í verslunum Bónuss á morgun.
Grímuskylda verður afnumin í verslunum Bónuss á morgun. mbl.is/Hari

Bónus fylgir í fótspor Krónunnar og mun aflétta grímuskyldu í öllum verslunum sínum á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum keðjunnar.

Í tilkynningunni eru viðskiptavinir hvattir til að huga vel að sóttvörnum og áréttað mikilvægi þess að virða eins metra regluna.

mbl.is greindi frá því fyrr í kvöld að Krónan myndi aflétta grímuskyldu í sínum verslunum á morgun eftir að stjórnvöld slökuðu á sóttvarnaaðgerðum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert