Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri fréttaskýringarþáttarins Kveiks, hefur verið kölluð til yfirheyrslu af lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Þetta kemur fram á vef Rúv.
Bætist hún þar með í hóp þeirra blaðamanna sem verða yfirheyrðir vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs, við umfjöllun sína um „skæruliðadeild Samherja.“