Spár gera ráð fyrir allhvassri austanátt norðaustan- og austanlands með snjókomu eða slyddu fyrri hluta dags. Fremur hæg breytileg átt í öðrum landshlutum, skýjað með köflum og stöku él. Snjókoma með vesturströndinni í kvöld.
Frost 0 til 5 stig.
Á morgun er spáð hæglætisveðri víðast hvar og él í flestum landshlutum.
Síðdegis verður þó væntanlega orðið úrkomulaust að kalla á Suður- og Vesturlandi. Herðir heldur á frostinu.