Dregið var í Happdrætti DAS í dag og aðalvinningurinn að þessu sinni var átta milljónir króna. Sá sem hreppti vinninginn býr í Reykjanesbæ og er rúmlega fimmtugur að aldri að því er fram kemur í tilkynningu frá DAS. Vinningurinn er skattfrjáls eins og allir vinningar í Happdrætti DAS.
Þetta er annar dagurinn í röð þar sem stór vinningur fellur í skaut íbúa á Suðurnesjum. Í gær nældi heppinn Suðurnesjabúi sér í tæplega tíu milljónir króna í Víkingalottóinu.