Kæra gagnvart Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra hefur borist forsætisnefnd Alþingis. Þetta staðfesti Birgir Ármannsson formaður forsætisnefndar við fréttastofu RÚV sem greindi fyrst frá.
Segir í frétt RÚV að gert sé ráð fyrir því að erindið verði tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar en að ekki liggi ekki fyrir hver þar var sem lagði fram kæruna.
Kæran snýr að niðrandi ummælum Sigurðar Inga um Vigdísi Häsler, formann Bændasamtakanna, sem hann lét falla á flokksþingi í tengslum við Búnaðarþing.
Ekki hefur enn fengist upplýst hvað það var nákvæmlega sem Sigurður sagði og hefur hann ekki viljað tjá sig um það. Af yfirlýsingu Vigdísar má ætla að ummælin hafi snúist um húðlit, kynþátt eða kynferði hennar.
Ekki náðist í Birgi Ármannsson við vinnslu fréttarinnar.