Logi Pedro Stefánsson segir aðgerðir sérsveitar ríkislögreglustjóra í dag vera óásættanlegar og vísar þá til þess að sérsveitin stöðvaði strætisvagn vegna gruns um að Gabríel Douane Boama, sem strauk úr gæsluvarðhaldi í gær, væri um borð í vagninum.
„Það er óásættanleg sturlun að vopnuð sérsveit fari í aðgerðir og fjarlægi 16 ára barn, einungis af því að það er með sömu klippingu og eftirlýstur einstaklingur,“ segir Logi í færslu á Facebook.
Þá segir hann að aðferðir lögreglu í málinu til að lýsa eftir Gabríel á samfélagsmiðlum sé „gjörsamlega brotin“.
„og greinilegt að hún getur sett fullt af Íslendingum með erlendan bakgrunn í hættulegar aðstæður. Þetta fáránlega atvik kallar á skýrar verklagsbreytingar, afsökunarbeiðni frá lögreglunni og viðbrögð frá æðstu ráðamönnum þjóðarinnar.“