Sjósundshópurinn Bárurnar eru komnar í land eftir tæplega 16 tíma boðsund yfir Ermasundið en þær voru í beinu streymi á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.
Mikill öldugangur virðist hafa verið síðasta spölinn við Frakklandsstrendur, eins og við mátti búast, en mbl.is ræddi við Guðmundu Elíasdóttur fyrr í dag sem sagði þær vera í kappi við tímann vegna veðurfarsins á lokametrunum.
Beint streymi frá lokametrunum birtist á facebooksíðu Báranna við lokasprettinn:
Nú er þó ljóst að þeim tókst ætlunarverkið sitt og komust í land. Annað eins myndskeið mátti sjá fyrir um klukkustund.
„Ég ætla aldrei að synda í sjó aftur á ævinni. Ég ætla að henda öllum sundbolunum mínum,“ grínast Sigríður Lárusdóttir í myndskeiðinu, en hún var þá tiltölulega nýkomin um borð á skipið eftir að hafa synt tæpa fimm kílómetra á einum klukkustund.
Fréttin var uppfærð þegar Bárurnar náðu landi.
Sjósundhópurinn Bárurnar samanstendur af þeim Guðmundu Elíasdóttur, Elsu Valsdóttur, Sigríði Lárusdóttur, Hörpu Leifsdóttur, Jórunni Atladóttur og Bjarnþóru Egilsdóttur.